þriðjudagur, júlí 31, 2007

 

Summer Holiday

Jæja, þá er maður nú loksins kominn í sumarfrí. Ætla að liggja í leti fyrst um sinn.

Minni á hátíðahöldin um helgina. Vonast til að sjá sem flesta. Veðurspáin er að vísu ekkert sérstök fyrir helgina, en kommon, það er nú ekkert sem við Frónbúar höfum ekki séð áður. Mæta bara í kuldagallanum ef ekki vill betur til. Þannig að engar afsakanir duga, jafnvel þótt menn séu tengdir einhverjum í Bárðardal. Sjálfskipuð skemmtinefnd systra minna ku vera að störfum og ég get bara ekki ímyndað mér hverju þær taka uppá en vonandi verður það allt innan velsæmismarka. Það er engin sérstök tilkynningaskylda en þó nokkrir hafa boðað komu sína en hinir mæta bara galvaskir. Er það ekki annars?

|


<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?