sunnudagur, febrúar 13, 2005

 

Alive and Kicking

Hér er gersamlega allt að ske eins og venjulega. Maður sér sig ekki einu sinni knúinn til að tjá sig um efni líðandi stundar. Maður er bara búinn að vera að gaufa þetta í vinnunni. Ekki það að það hafi verið brjálað að gera þar svo sem. Um leið og loðnan frétti að ég væri byrjaður að vinna í Krossanesi þá lét hún sig gersamlega hverfa af miðunum, allavega lét hún skip Ísfélagsins ekki finna sig nema í litlum mæli. En nú byrjar þetta allt á fullu aftur og mæti ég galvaskur á dagvakt á slaginu 12 á mánudaginn.

Gerði mér dagamun um síðustu helgi og gerði heiðarlega tilraun til að fara út að skemmta mér. Skrapp á Vélsmiðjuna og eins og venjulega lenti ég í samræðum við gamla vinnufélaga af ýmsum stöðum. Það var annars ekkert að gerast þarna og dreif ég mig heim fljótlega. Mér skilst að það hafi verið meira fjör upp á Kárahnjúkum allavega.

Og fyrir þá sem ekki vita það, þá ætla ég að sjá IRON MAIDEN.

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?