fimmtudagur, maí 10, 2007

 

Valentína er týnd

Heyrst hefur á götunni að landssamtök harmonikkuunnenda hafi beitt sér fyrir því að rúmensku listamönnunum hafi verið vísað úr landi á dögunum.

|

sunnudagur, maí 06, 2007

 

In the Shadows

Ég fann fyrir mikilli þreytutilfinningu og öðrum ónotum þegar ég vaknaði í morgun. Samt ákvað ég að leita ekki læknis og missti þar af leiðandi af þyrluflugi. Djöh!

Jæja ég hefði nú sennilega ekki lifað þá ferð af reyndar.

|

fimmtudagur, maí 03, 2007

 

Sad Song

Ég hélt að það væri kominn fyrsti apríl áðan þegar ég heyrði fréttirnar um að það væri búið að fresta Vaðlaheiðargöngunum. Endemis vitleysa er þetta eiginlega.

Jæja maður verður þá bara að detta alveg hryllilega í það um helgina og verða sér skammar enn eina ferðina í Sjallanum. Bo og Brimkló leika fyrir dansi og það er ekkert víst að það klikki.

|

þriðjudagur, maí 01, 2007

 

Working Class Heroes

Óska ykkur öllum til hamingju með daginn. Hvað ætli mörg ykkar viti hvað hann stendur fyrir.

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?