þriðjudagur, júní 12, 2007

 

To catch a paper boy

Talsmaður samtaka framliðinna harmonikkuleikara hefur krafist þess að ég dragi ummæli mín um brottvísun rúmensku harmonikkuleikarana til baka og lýsi þau dauð og ómerk. Það tilkynnist hér með að það er algerlega fjarri mér að gera slíkt og getur viðkomandi bara átt sig.

Hins vegar tilkynnist það að samningar hafa náðst um hátíðahöld af tilefni meints þrítugsafmælis míns og verður gerningurinn haldinn þann 4. ágúst næstkomandi á tjaldstæðinu á Sigríðarstöðum í Ljósavatnsskarði en þar skoppaði ég um grundir seint á síðustu öld.

Blóm, kransar og klósettpappír vinsamlega afþakkaður.

|


<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?